FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. FEBRÚAR 2007

Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 19,2 milljarða króna og inn fyrir 26,2 milljarða króna fob (28,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 6,9 milljarða króna. Í janúar 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 10,1 milljarð króna á sama gengi¹. Verðmæti vöruútflutnings var 6,4% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður og verðmæti vöruinnflutnings var 14,6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Vöruskiptin við útlönd janúar 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-janúar
Janúar
  2006 2007
Útflutningur alls fob 20.555 19.246 -6,4
Innflutningur alls fob 30.682 26.195 -14,6
Vöruskiptajöfnuður -10.128 -6.949 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-janúar
janúar
  2006 2007
Útflutningur alls fob 17.050,9 19.246,1 -6,4
Sjávarafurðir 7.911,7 8.544,8 -10,4
Landbúnaðarvörur 476,2 543,7 -5,3
Iðnaðarvörur 5.362,4 9.600,2 48,5
Aðrar vörur 3.300,6 557,4 -86,0
Innflutningur alls fob 25.452,0 26.195,1 -14,6
Matvörur og drykkjarvörur 1.209,8 1.844,8 26,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 7.000,5 5.555,0 -34,2
Eldsneyti og smurolíur 2.679,0 3.467,5 7,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 6.700,8 7.194,0 -10,9
Flutningatæki 4.724,2 3.023,6 -46,9
Neysluvörur ót.a. 3.105,8 5.075,1 35,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 32,0 35,2 -8,7
Vöruskiptajöfnuður -8.401,2 -6.949,1 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 20,5% hærra í janúar 2007 en árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.