FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 03. DESEMBER 2008

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir nóvember 2008 nam útflutningur fob 43,2 milljörðum króna og innflutningur fob 40,8 milljörðum króna. Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Vegna mikilla hreyfinga á gengi krónunnar er samanburður á breytingum á milli mánaða erfiður. Bent er á að gengishækkun mæld með vöruviðskiptavog, sem Hagstofan notar til uppreiknings talna, var 13,5% á milli október og nóvember.

Vísbendingar eru um minna verðmæti útfluttra sjávarafurða og áls en aukið verðmæti innfluttra hrá- og rekstrarvara miðað við október 2008.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.