FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 04. FEBRÚAR 2009

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir janúar 2009 nam útflutningur fob 33,6 milljörðum króna og innflutningur fob 33,3 milljörðum króna. Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 0,3 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Vísbendingar eru um minna verðmæti útfluttra sjávarafurða og áls en meira verðmæti innflutts eldsneytis og hrá og rekstrarvara í janúar 2009 miðað við desember 2008.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.