Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir ágúst 2015 var útflutningur fob 47,3 milljarðar króna og innflutningur fob var 49,4 milljarðar króna. Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um rúman 2,1 milljarð króna.
Athygli skal vakin á því að áætlun um eldsneytiskaup íslenskra flutningsfara erlendis er nú meðtalin í bráðabirgðatölum.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.