FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 04. NÓVEMBER 2011


Vöruskiptajöfnuður
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 62,5 milljarða króna og inn fyrir 46,9 milljarða króna fob (50,3 milljarð króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 15,5 milljarða króna. Í september 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 11,2 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu níu mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 459,9 milljarða króna en inn fyrir 378,4 milljarða króna fob (407,0 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 81,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 86,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 5,2 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 51,7 milljörðum eða 12,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 12,2% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 55,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 12,4% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða, aðallega á frystum heilum fiski.

Innflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 56,9 milljörðum eða 17,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru og eldsneyti.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–september 2010 og 2011
Breytingar
frá fyrra ári
Millj. kr. á föstu gengi á föstu
September Jan.-september gengi, % 1
  2010 2011 2010 2011 Jan.-september
Útflutningur alls fob 52.080 62.477 408.215 459.923 12,7
Innflutningur alls fob 40.898 46.945 321.516 378.381 17,7
 
Vöruskiptajöfnuður 11.182 15.532 89.698 81.542 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–september 2010 og 2011
Breytingar
frá fyrra ári
Millj. kr. á gengi hvors árs á föstu
September Jan.-september gengi 1) %
    2010 2011 2010 2011 Jan.-september
Útflutningur alls fob 49.756,0 62.476,5 415.316,5 459.922,8 12,7
Sjávarafurðir 21.493,0 28.569,7 163.867,8 180.662,0 12,2
Landbúnaðarvörur 644,9 589,6 4.984,3 5.882,8 20,1
Iðnaðarvörur 25.688,9 31.943,2 231.667,4 255.860,4 12,4
Aðrar vörur 1.929,3 1.373,9 14.797,0 17.517,7 20,5
Innflutningur alls fob 39.073,4 46.944,6 327.109,8 378.381,0 17,7
Matvörur og drykkjarvörur 3.649,6 4.480,0 31.898,6 35.732,1 14,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.440,4 12.038,9 111.552,7 127.944,2 16,7
Eldsneyti og smurolíur 5.739,2 12.842,6 43.535,7 57.817,3 35,1
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.063,7 8.968,4 74.155,2 81.095,0 11,3
Flutningatæki 1.993,1 2.313,8 18.784,1 26.429,2 43,2
Neysluvörur ót.a. 6.145,4 6.217,7 46.752,5 48.852,1 6,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 41,9 83,2 431,0 511,1 20,7
Vöruskiptajöfnuður 10.682,6 15.531,9 88.206,7 81.541,8 ·


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris

1,7% lægra mánuðina janúar–september 2011 en sömu mánuði fyrra árs.

Í september 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 4,7% hærra en í september árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.