FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. OKTÓBER 2010

Vöruskiptajöfnuður
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 49,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 39,1 milljarð króna fob (42,2 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 10,6 milljarða króna. Í september 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 9,5 milljarða króna á sama gengi¹.
 Fyrstu níu mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 415,8 milljarða króna en inn fyrir 327,2 milljarða króna fob (354,8 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 88,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 63,0 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 25,6 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 51,3 milljörðum eða 14,1% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,3% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 55,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 36,3% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í  útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.


Innflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 25,7 milljörðum eða 8,5% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.

Vöruskiptin við útlönd september 2010
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-september
September  Janúar-september
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 45.053 49.701 364.502 415.793 14,1
Innflutningur alls fob 35.574 39.074 301.473 327.210 8,5
Vöruskiptajöfnuður 9.480 10.628 63.029 88.583 .

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-september 2009 og 2010
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-september
September Janúar-september
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 51.290,1 49.701,4 363.665,4 415.792,9 14,1
Sjávarafurðir 19.779,6 21.505,3 152.312,9 163.851,1 7,3
Landbúnaðarvörur 458,4 632,5 5.143,3 5.381,0 4,4
Iðnaðarvörur 22.447,4 25.553,6 169.622,4 231.647,0 36,3
Aðrar vörur 8.604,7 2.009,9 36.586,8 14.913,9 -59,3
Innflutningur alls fob 40.498,2 39.073,8 300.781,2 327.209,5 8,5
Matvörur og drykkjarvörur 3.549,3 3.750,4 30.874,9 31.994,2 3,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 11.539,7 13.363,3 94.183,9 111.457,1 18,1
Eldsneyti og smurolíur 8.239,3 5.737,6 39.378,1 43.534,2 10,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.052,3 8.043,3 64.981,7 74.241,3 14,0
Flutningatæki 2.345,1 1.993,2 25.920,0 18.817,0 -27,6
Neysluvörur ót.a. 6.654,2 6.144,9 44.983,1 46.734,1 3,7
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 118,4 41,1 459,4 431,7 -6,2
Vöruskiptajöfnuður 10.791,9 10.627,6 62.884,2 88.583,4 .

Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 0,2% hærra mánuðina janúar–september 2010 en sömu mánuði fyrra árs.
Í september 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 12,2% lægra en í september árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.