FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. DESEMBER 2011


Vöruskiptajöfnuður
Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 52,7 milljarða króna og inn fyrir 44,6 milljarða króna fob (tæpa 48,0 milljarða króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 8,0 milljarða króna. Í október 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 11,6 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu tíu mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 512,6 milljarða króna en inn fyrir 423,1 milljarð króna fob (455,0 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 89,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 98,2 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því tæpum 8,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 55,8 milljörðum eða 12,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 40,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,2% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 54,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 10,6% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða, aðallega á frystum heilum fiski.

Innflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 64,5 milljörðum eða 18,0% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og fjárfestingarvöru.

Vöruskiptin við útlönd október 2011
Millj. kr á gengi ársins 2011 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-október
Október  Janúar-október
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 48.720 52.678 456.758 512.590 12,2
Innflutningur alls fob 37.137 44.642 358.571 423.060 18,0
 
Vöruskiptajöfnuður 11.583 8.036 98.187 89.530 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-október 2010 og 2011
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-október
Október Janúar-október
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 47.036,2 52.678,3 462.352,7 512.590,4 12,2
Sjávarafurðir 20.093,9 25.118,1 183.961,8 205.780,1 13,2
Landbúnaðarvörur 1.027,1 1.376,7 6.011,4 7.259,5 22,2
Iðnaðarvörur 24.928,1 24.574,3 256.595,5 280.423,9 10,6
Aðrar vörur 987,1 1.609,2 15.784,0 19.126,9 22,7
Innflutningur alls fob 35.853,3 44.641,8 362.963,1 423.059,9 18,0
Matvörur og drykkjarvörur 3.595,0 4.432,4 35.493,6 39.942,3 13,9
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 11.959,6 13.827,4 123.512,3 141.999,5 16,4
Eldsneyti og smurolíur 4.297,0 6.430,7 47.832,8 64.254,9 36,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.128,6 11.707,2 82.283,8 92.815,2 14,2
Flutningatæki 1.836,5 2.237,5 20.620,5 28.666,7 40,7
Neysluvörur ót.a. 6.005,3 5.987,6 52.757,8 54.851,1 5,2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 31,4 19,1 462,3 530,2 16,1
Vöruskiptajöfnuður 11.182,9 8.036,5 99.389,7 89.530,5 .


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,2% lægra mánuðina janúar–október 2011 en sömu mánuði fyrra árs.

Í október 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 3,6% hærra en í október árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.