FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. NÓVEMBER 2010


Vöruskiptajöfnuður
Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 47,0 milljarða króna og inn fyrir 36,9 milljarða króna fob (39,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 10,1 milljarð króna. Í október 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 10,5 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu tíu mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 462,7 milljarða króna en inn fyrir 364,2 milljarða króna fob (394,6 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 98,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 74,0 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 24,5 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 57,2 milljörðum eða 14,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,7% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 55,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 34,2% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.


Innflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 32,7 milljörðum eða 9,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.

Vöruskiptin við útlönd október 2010
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-október
Október  Janúar-október
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 40.809 47.005 405.480 462.701 14,1
Innflutningur alls fob 30.315 36.918 331.466 364.156 9,9
Vöruskiptajöfnuður 10.494 10.087 74.014 98.545 .

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-október 2009 og 2010
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-október
Október Janúar-október
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 46.863,6 47.005,0 410.529,0 462.700,8 14,1
Sjávarafurðir 20.519,2 20.077,2 172.832,1 183.876,0 7,7
Landbúnaðarvörur 821,3 1.028,2 5.964,6 6.408,5 8,8
Iðnaðarvörur 23.927,3 24.927,8 193.549,7 256.530,6 34,2
Aðrar vörur 1.595,8 971,8 38.182,5 15.885,7 -57,9
Innflutningur alls fob 34.812,3 36.918,2 335.593,5 364.155,9 9,9
Matvörur og drykkjarvörur 3.324,7 3.595,0 34.199,6 35.593,8 5,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 9.443,8 11.958,1 103.627,8 123.418,7 20,6
Eldsneyti og smurolíur 1.707,3 4.288,3 41.085,5 47.822,5 17,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.717,7 9.204,1 72.699,4 83.451,8 16,2
Flutningatæki 6.054,7 1.836,1 31.974,7 20.653,2 -34,6
Neysluvörur ót.a. 6.544,1 6.005,2 51.527,2 52.753,1 3,7
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 19,9 31,4 479,2 462,8 -2,2
Vöruskiptajöfnuður 12.051,3 10.086,8 74.935,5 98.544,9 ·


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,2% lægra mánuðina janúar–október 2010 en sömu mánuði fyrra árs.

Í október 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 12,9% lægra en í október árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.