FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. JANÚAR 2012


Vöruskiptajöfnuður
Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 53,5 milljarða króna og inn fyrir 45,6 milljarða króna fob (49,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 7,9 milljarða króna. Í nóvember 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 7,2 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu ellefu mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 566,0 milljarða króna en inn fyrir 468,6 milljarða króna fob (504,1 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 97,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 105,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings tæpum 59,0 milljörðum eða 11,6% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 40,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,3% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 54,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,7% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og afurða áls, og í útflutningi sjávarafurða, aðallega á frystum heilum fiski.

Innflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 67,0 milljörðum eða 16,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og fjárfestingarvöru.

Vöruskiptin við útlönd nóvember 2011
Millj. kr á gengi ársins 2011 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-nóvember
Nóvember  Janúar-nóvember
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 50.365 53.465 507.053 566.041 11,6
Innflutningur alls fob 43.172 45.560 401.513 468.556 16,7
Vöruskiptajöfnuður 7.193 7.905 105.540 97.485 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-nóvember 2010 og 2011
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-nóvember
nóvember Janúar-nóvember
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 48.274,5 53.464,5 510.627,3 566.041,2 11,6
Sjávarafurðir 19.837,2 23.488,9 203.798,9 229.255,2 13,3
Landbúnaðarvörur 1.130,9 1.186,9 7.142,3 8.120,8 14,5
Iðnaðarvörur 26.405,5 27.597,3 283.001,0 308.346,8 9,7
Aðrar vörur 901,0 1.191,4 16.685,0 20.318,3 22,6
Innflutningur alls fob 41.380,1 45.559,6 404.343,2 468.555,7 16,7
Matvörur og drykkjarvörur 3.544,2 4.194,7 39.037,8 44.138,6 13,9
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 11.979,6 14.092,5 135.491,9 156.027,0 16,0
Eldsneyti og smurolíur 4.912,3 6.585,5 52.745,1 70.840,4 35,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.910,1 10.736,8 91.193,9 103.553,2 14,4
Flutningatæki 5.482,7 2.847,8 26.103,3 31.514,4 21,6
Neysluvörur ót.a. 6.538,8 6.949,8 59.296,5 61.799,6 5,0
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 12,4 152,4 474,7 682,6 44,8
Vöruskiptajöfnuður 6.894,4 7.904,9 106.284,1 97.485,4 .


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 0,7% lægra mánuðina janúar–nóvember 2011 en sömu mánuði fyrra árs.

Í nóvember 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 4,3% hærra en í nóvember árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.