Vöruskiptajöfnuður
Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 52,9 milljarða króna og inn fyrir 41,4 milljarða króna fob (44,7 milljarða króna cif). Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 11,5 milljarða króna. Í mars 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 18,6 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu þrjá mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 136,0 milljarða króna en inn fyrir 104,7 milljarða króna fob (113,6 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 31,3 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um tæpa 28,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 2,6 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 1,5% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 36,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,3% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 58,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 39,5% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.
Innflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 0,6 milljörðum eða 0,6% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Smávægileg aukning var í innflutningi fjárfestingarvara og neysluvara en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.
Vöruskiptin við útlönd mars 2010 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2010 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-mars | ||||
Mars | Janúar-mars | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 51.173 | 52.854 | 134.053 | 136.004 | 1,5 |
Innflutningur alls fob | 32.604 | 41.389 | 105.298 | 104.658 | -0,6 |
Vöruskiptajöfnuður | 18.569 | 11.465 | 28.755 | 31.346 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-mars 2009 og 2010 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-mars | ||||
Mars | Janúar-mars | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 43.622,3 | 52.853,9 | 115.862,9 | 136.004,0 | 1,5 |
Sjávarafurðir | 15.181,6 | 20.514,7 | 42.630,9 | 49.982,0 | 1,3 |
Landbúnaðarvörur | 622,1 | 685,2 | 2.170,5 | 2.240,4 | -10,8 |
Iðnaðarvörur | 17.353,1 | 30.626,4 | 49.641,6 | 80.139,2 | 39,5 |
Aðrar vörur | 10.465,5 | 1.027,6 | 21.419,9 | 3.642,4 | -85,3 |
Innflutningur alls fob | 27.793,3 | 41.388,8 | 91.009,5 | 104.657,8 | -0,6 |
Matvörur og drykkjarvörur | 3.001,4 | 4.585,2 | 8.488,0 | 10.541,3 | 7,3 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 8.070,8 | 12.901,7 | 30.916,4 | 36.173,0 | 1,1 |
Eldsneyti og smurolíur | 2.158,3 | 5.308,4 | 10.051,5 | 11.730,6 | 0,9 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 7.134,0 | 10.356,1 | 20.454,9 | 24.948,1 | 5,4 |
Flutningatæki | 2.198,8 | 1.822,3 | 8.106,0 | 5.338,8 | -43,1 |
Neysluvörur ót.a. | 5.186,7 | 6.395,2 | 12.835,5 | 15.814,5 | 6,5 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 43,3 | 19,9 | 157,1 | 111,3 | -38,8 |
Vöruskiptajöfnuður | 15.829,0 | 11.465,0 | 24.853,4 | 31.346,2 | . |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 15,7% hærra mánuðina janúar–mars 2010 en sömu mánuði fyrra árs.
Í mars 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 17,3% hærra en í mars árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.
Talnaefni