FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. SEPTEMBER 2011


Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 54,9 milljarða króna og inn fyrir 42,1 milljarð króna fob (45,3 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 12,8 milljarða króna. Í júlí 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 4,2 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu sjö mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 339,9 milljarða króna en inn fyrir 285,9 milljarða króna fob (307,7 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 54,0 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 67,9 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 13,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 27,6 milljörðum eða 8,8% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 37,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,3% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 56,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,6% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og kísiljárns. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða og skipum og flugvélum.

Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 41,5 milljörðum eða 17,0% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og flutningatækjum en einnig varð aukning í innflutningi á fjárfestingarvörum og neysluvörum.

Vöruskiptin við útlönd júlí 2011
Millj. kr á gengi ársins 2011 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-júlí
Júlí  Janúar-júlí
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 45.449 54.908 312.324 339.921 8,8
Innflutningur alls fob 41.263 42.089 244.406 285.901 17,0
 
Vöruskiptajöfnuður 4.186 12.819 67.918 54.020 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júlí 2010 og 2011
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júlí
Júlí Janúar-júlí
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 43.971,5 54.908,0 323.685,6 339.921,2 8,8
Sjávarafurðir 17.956,2 22.656,3 124.749,0 128.012,7 6,3
Landbúnaðarvörur 354,0 467,7 4.060,3 4.661,5 19,0
Iðnaðarvörur 24.866,9 30.576,7 183.841,9 192.647,4 8,6
Aðrar vörur 794,3 1.207,3 11.034,4 14.599,7 37,1
Innflutningur alls fob 39.922,0 42.089,1 253.297,0 285.901,0 17,0
Matvörur og drykkjarvörur 3.698,2 4.019,6 24.868,8 26.643,0 11,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.772,7 13.642,8 87.631,5 99.349,5 17,5
Eldsneyti og smurolíur 7.402,9 8.394,1 31.338,8 39.189,9 29,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.630,0 8.049,3 58.820,4 61.456,6 8,3
Flutningatæki 2.684,5 2.518,6 15.125,7 22.148,8 51,8
Neysluvörur ót.a. 4.696,1 5.427,5 35.145,4 36.736,1 8,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 37,7 37,2 366,5 377,1 6,6
Vöruskiptajöfnuður 4.049,4 12.818,9 70.388,6 54.020,3 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 3,5% lægra mánuðina janúar–júlí 2011 en sömu mánuði fyrra árs.

Í júlí 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 3,4% hærra en í júlí árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.