FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. ÁGÚST 2010


Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 44,0 milljarða króna og inn fyrir 39,3 milljarða króna fob (42,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 4,6 milljarða króna. Í júlí 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 0,4 milljarða króna á sama gengi¹.

 Fyrstu sjö mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 321,4 milljarða króna en inn fyrir 252,9 milljarða króna fob (274,5 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 68,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 41,3 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 15,0% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,8% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 42,4% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í  útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.


Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 14,8 milljörðum eða 6,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.

Vöruskiptin við útlönd júlí 2010
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-júlí
Júlí  Janúar-júlí
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 38.022 43.956 279.415 321.391 15,0
Innflutningur alls fob 37.650 39.342 238.109 252.900 6,2
Vöruskiptajöfnuður 372 4.614 41.307 68.491 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júlí 2009 og 2010
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júlí
Júlí Janúar-júlí
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 41.536,5 43.955,6 268.307,5 321.391,3 15,0
Sjávarafurðir 18.218,2 17.889,3 113.183,3 124.666,8 5,8
Landbúnaðarvörur 602,9 353,4 4.245,4 4.468,6 1,1
Iðnaðarvörur 21.365,3 24.965,3 124.007,8 183.937,3 42,4
Aðrar vörur 1.350,1 747,7 26.871,1 8.318,6 -70,3
Innflutningur alls fob 41.129,8 39.341,7 228.642,8 252.900,1 6,2
Matvörur og drykkjarvörur 4.198,8 3.693,7 23.321,2 24.880,4 2,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 11.262,6 13.758,8 73.446,2 87.601,4 14,5
Eldsneyti og smurolíur 6.254,7 7.402,9 27.391,0 31.338,8 9,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.169,5 7.625,7 48.958,2 58.980,3 15,7
Flutningatæki 6.580,0 2.121,6 22.000,6 14.590,8 -36,3
Neysluvörur ót.a. 5.638,0 4.701,3 33.226,9 35.140,9 1,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 26,2 37,7 298,8 367,6 18,1
Vöruskiptajöfnuður 406,6 4.613,9 39.664,7 68.491,2 .


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 4,1% hærra mánuðina janúar–júlí 2010 en sömu mánuði fyrra árs.

Í júlí 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 8,5% lægra en í júlí árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.