FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MARS 2010


Vöruskiptajöfnuður
Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,4 milljarða króna og inn fyrir 30,4 milljarða króna fob (33,2 milljarða króna cif). Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpa 14 milljarða króna. Í febrúar 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 13,1 milljarð króna á sama gengi¹.

Fyrstu tvo mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 83,2 milljarða króna en inn fyrir 62,5 milljarða króna fob (68,1 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 20,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 10,4 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 10,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 0,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 35,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,6% minna en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru tæp 60% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 33,4% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en samdráttur  varð í útflutningi á skipum og flugvélum og útflutningi sjávarafurða.

Innflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 10,1 milljarði eða 13,9% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í flutningatækjum, hrá- og rekstrarvöru og eldsneyti.

Vöruskiptin við útlönd febrúar 2010
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-febrúar
Febrúar  Janúar-febrúar
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 46.710 44.399 83.026 83.150 0,1
Innflutningur alls fob 33.604 30.409 72.654 62.531 -13,9
Vöruskiptajöfnuður 13.106 13.990 10.372 20.619 .

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-febrúar 2009 og 2010
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-febrúar
Febrúar Janúar-febrúar
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 38.670,0 44.398,6 72.240,6 83.150,1 0,1
Sjávarafurðir 14.150,3 16.351,4 27.449,3 29.467,4 -6,6
Landbúnaðarvörur 699,1 850,0 1.548,3 1.555,1 -12,6
Iðnaðarvörur 14.779,4 26.136,1 32.288,6 49.512,8 33,4
Aðrar vörur 9.041,2 1.061,2 10.954,4 2.614,8 -79,2
Innflutningur alls fob 27.820,1 30.409,0 63.216,2 62.531,1 -13,9
Matvörur og drykkjarvörur 2.894,1 3.100,5 5.486,7 5.971,5 -5,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 9.709,8 12.914,2 22.845,6 23.257,2 -11,4
Eldsneyti og smurolíur 2.746,0 1.510,4 7.893,2 6.422,2 -29,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 6.423,6 6.493,3 13.321,0 14.617,4 -4,5
Flutningatæki 2.044,2 1.387,8 5.907,2 2.750,5 -59,5
Neysluvörur ót.a. 3.915,9 4.945,7 7.648,8 9.421,0 7,2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 86,6 57,2 113,8 91,4 -30,2
Vöruskiptajöfnuður 10.849,9 13.989,7 9.024,3 20.619,0 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 14,9% hærra mánuðina janúar–febrúar 2010 en sömu mánuði fyrra árs.

Í febrúar 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 20,8% hærra en í febrúar árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.