FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. JÚNÍ 2011


Vöruskiptajöfnuður
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 42,0 milljarða króna og inn fyrir tæpa 36,0 milljarða króna fob (tæpa 39,0 milljarða króna cif). Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 6,0 milljarða króna. Í apríl 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 6,9 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu fjóra mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 184,1 milljarð króna en inn fyrir 149,9 milljarða króna fob (161,6 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 34,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 35,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 1,3 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 20,2 milljörðum eða 12,3% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 36,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,7% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 55,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,0% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða og skipum og flugvélum.

Innflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 21,5 milljörðum eða 16,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti varð í öllum liðum innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru.

Vöruskiptin við útlönd apríl 2011
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-apríl
Apríl  Janúar-apríl
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 39.029 41.990 163.918 184.126 12,3
Innflutningur alls fob 32.091 35.961 128.400 149.892 16,7
Vöruskiptajöfnuður 6.937 6.029 35.518 34.233 .

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-apríl 2010 og 2011
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-janúar
Apríl Janúar-apríl
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 41.095,7 41.989,9 176.730,9 184.125,8 12,3
Sjávarafurðir 17.148,9 16.949,1 67.138,5 67.674,3 8,7
Landbúnaðarvörur 658,3 545,7 2.545,3 3.136,0 32,8
Iðnaðarvörur 21.832,6 23.268,8 101.979,6 102.165,8 8,0
Aðrar vörur 1.455,9 1.226,3 5.067,5 11.149,7 .
Innflutningur alls fob 33.791,0 35.960,8 138.436,9 149.892,4 16,7
Matvörur og drykkjarvörur 3.137,7 3.475,6 13.666,6 13.186,7 4,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.513,2 15.470,8 49.714,5 55.903,4 21,2
Eldsneyti og smurolíur 2.229,2 1.944,6 13.959,8 16.448,9 27,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.061,1 7.285,2 33.015,5 33.657,9 9,9
Flutningatæki 2.126,8 2.641,7 7.438,3 10.505,6 52,3
Neysluvörur ót.a. 4.696,5 5.090,0 20.504,5 20.054,6 5,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 26,5 52,8 137,6 135,4 6,1
Vöruskiptajöfnuður 7.304,7 6.029,1 38.294,0 34.233,4 .

Athygli skal vakin á því að samhliða þessari birtingu eru niðurstöður eldri ára endurskoðaðar. Í gögnum fyrir árið 2006 var vantalinn innflutningur á flugvél sem nam tæpum 5 milljörðum og í gögnum áranna 2006, 2008 og 2009 var útflutningur á hákarlalýsi ranglega flokkaður sem hvallýsi.

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 7,2% lægra mánuðina janúar–apríl 2011 en sömu mánuði fyrra árs.

Í apríl 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 5,0% lægra en í apríl árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.