FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. OKTÓBER 2011


Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 11. október 2011 9:00 frá upprunalegri útgáfu. 

Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 56,7 milljarða króna og inn fyrir 45,6 milljarða króna fob (49,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 11,1 milljarð króna. Í ágúst 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 7,3 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu átta mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 397,5 milljarða króna en inn fyrir 331,5 milljarða króna fob (356,8 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 65,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 74,3 milljarða á sama gengi¹.

Vöruskiptajöfnuðurinn var því 8,3 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 47,3 milljörðum eða 13,5% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,5% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 56,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,5% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og kísiljárns. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða.

Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 55,6 milljörðum eða 20,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.

Vöruskiptin við útlönd ágúst 2011
Millj. kr á gengi ársins 2011 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-ágúst
Ágúst  Janúar-ágúst
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 42.796 56.696 350.170 397.462 13,5
Innflutningur alls fob 35.504 45.641 275.910 331.537 20,2
 
Vöruskiptajöfnuður 7.292 11.055 74.260 65.925 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-ágúst 2010 og 2011
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst
Ágúst Janúar-ágúst
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 41.874,9 56.695,9 365.560,5 397.462,5 13,5
Sjávarafurðir 17.625,9 23.933,0 142.374,9 152.091,9 11,5
Landbúnaðarvörur 279,1 631,7 4.339,4 5.293,2 27,3
Iðnaðarvörur 22.136,7 30.586,7 205.978,6 223.933,2 13,5
Aðrar vörur 1.833,3 1.544,5 12.867,7 16.144,2 31,0
Innflutningur alls fob 34.739,4 45.640,8 288.036,4 331.537,3 20,2
Matvörur og drykkjarvörur 3.380,2 4.601,1 28.249,0 31.244,8 15,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 10.480,8 16.547,3 98.112,3 115.907,6 23,3
Eldsneyti og smurolíur 6.457,8 5.784,7 37.796,6 44.974,6 24,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.271,1 10.750,7 66.091,5 72.204,6 14,0
Flutningatæki 1.665,2 1.966,1 16.790,9 24.115,2 49,9
Neysluvörur ót.a. 5.461,6 5.940,5 40.607,1 42.662,5 9,7
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 22,6 50,5 389,1 428,0 14,8
Vöruskiptajöfnuður 7.135,5 11.055,1 77.524,1 65.925,1 .


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris

4,2% lægra mánuðina janúar–ágúst 2011 en sömu mánuði fyrra árs.

Í ágúst 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 2,2% hærra en í ágúst árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.