FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. SEPTEMBER 2010


Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 41,8 milljarða króna og inn fyrir 34,8 milljarða króna fob (37,6 milljarða króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 7,0 milljarða króna. Í ágúst 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 11,3 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu átta mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 363,2 milljarða króna en inn fyrir 287,7 milljarða króna fob (312,1 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 75,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 54,1 milljarð á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21,4 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 39 milljörðum eða 12,0% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,3% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 56,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 34,9% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í  útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 17,5 milljörðum eða 6,5% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.

Vöruskiptin við útlönd ágúst 2010
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-ágúst
Ágúst  Janúar-ágúst
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 39.983 41.805 324.246 363.197 12,0
Innflutningur alls fob 28.707 34.776 270.174 287.684 6,5
Vöruskiptajöfnuður 11.276 7.029 54.072 75.513 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-ágúst 2009 og 2010
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst
Ágúst Janúar-ágúst
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 44.067,8 41.804,7 312.375,3 363.196,7 12,0
Sjávarafurðir 19.353,0 17.478,2 132.533,3 142.151,4 3,3
Landbúnaðarvörur 436,6 279,1 4.684,9 4.748,5 -2,4
Iðnaðarvörur 23.167,3 22.209,1 147.175,1 206.093,3 34,9
Aðrar vörur 1.111,0 1.838,5 27.982,0 10.203,5 -64,9
Innflutningur alls fob 31.640,2 34.776,2 260.283,0 287.684,0 6,5
Matvörur og drykkjarvörur 4.004,4 3.377,1 27.325,5 28.257,5 -0,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 9.198,0 10.478,0 82.644,2 98.094,6 14,3
Eldsneyti og smurolíur 3.747,9 6.457,8 31.138,9 37.796,6 16,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.971,2 7.301,5 56.929,4 66.275,8 12,2
Flutningatæki 1.574,4 1.680,2 23.575,0 16.271,0 -33,5
Neysluvörur ót.a. 5.102,1 5.458,6 38.329,0 40.597,9 2,0
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 42,2 23,1 341,0 390,6 10,3
Vöruskiptajöfnuður 12.427,6 7.028,5 52.092,3 75.512,7 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 3,8% hærra mánuðina janúar–ágúst 2010 en sömu mánuði fyrra árs.

Í ágúst 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 9,3% lægra en í ágúst árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.