FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 26. FEBRÚAR 2010

Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 38,7 milljarða króna og inn fyrir 32,1 milljarð króna fob (34,9 milljarða króna cif). Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 6,5 milljarða króna. Verðmæti vöruútflutnings var 4,8% meira en í janúar 2009 og verðmæti vöruinnflutnings var 12,9% minna á föstu gengi¹ frá sama tíma. Í janúar 2009 voru vöruskiptin í járnum.

Vöruskiptin við útlönd janúar 2010
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % janúar
Janúar
  2009 2010
Útflutningur alls fob 33.569 38.677 4,8
Innflutningur alls fob 33.555 32.130 -12,9
Vöruskiptajöfnuður 14 6.547 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-janúar 2009 og 2010
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-janúar
Janúar
  2009 2010
Útflutningur alls fob 33.569,3 38.676,9 4,8
Sjávarafurðir 13.297,5 13.041,3 -10,8
Landbúnaðarvörur 849,2 705,2 -24,5
Iðnaðarvörur 17.509,2 23.376,8 21,4
Aðrar vörur 1.913,3 1.553,7 -26,1
Innflutningur alls fob 33.555,3 32.129,9 -12,9
Matvörur og drykkjarvörur 2.592,8 2.872,4 0,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.135,8 10.345,8 -28,4
Eldsneyti og smurolíur 5.147,2 4.911,9 -13,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 6.897,4 8.127,0 7,2
Flutningatæki 2.022,1 1.362,7 -38,7
Neysluvörur ót.a. 3.732,7 4.475,9 9,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 27,2 34,2 14,3
Vöruskiptajöfnuður 14,0 6.547,0 .

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 10,0% hærra í janúar 2010 en í janúar 2009.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna.

Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.