FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. NÓVEMBER 2018

Samkvæmt bráðabirgðatölum var vöru- og þjónustujöfnuður á þriðja ársfjórðungi 2018, eins og hann birtist í þjóðhagsreikningum og greiðslujöfnuði, jákvæður um 80 milljarða króna en hann var jákvæður um 69,4 milljarða á sama tíma árið 2017, á gengi hvors árs. Umreiknaður vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 43,7 milljarða króna en þjónustujöfnuður var hagstæður um 123,7 milljarða.

Heildarútflutningstekjur á þriðja ársfjórðungi 2018 vegna vöru- og þjónustuviðskipta námu tæpum 398,2 milljörðum króna en heildarinnflutningur á vörum og þjónustu nam 318,1 milljarði króna.

Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruviðskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan gögn um mánaðarlegan vöruviðskipta-og þjónustujöfnuð fyrir 2018. Áður höfðu fyrstu átta mánuðir ársins verið gefnir út en í þessari útgáfu bætast við tölur fyrir september.

Í september er áætlað verðmæti útflutnings fyrir vöru- og þjónustuviðskipti 127,1 milljarður en áætluð verðmæti innflutnings fyrir vöru- og þjónustuviðskipti 103,9 milljarðar. Vöru og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 23,2 milljarða í september 2018.

Þessar upplýsingar koma fram í brúartöflum á vef Hagstofunnar sem samræmir staðla vöruviðskipta og greiðslujafnaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.