FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 24. NÓVEMBER 2023

Verðmæti þjónustuútflutnings á þriðja ársfjórðungi 2023 er áætlað 311 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 160,7 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 150,3 milljarða króna en hann var jákvæður um 117,9 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá október 2022 til september 2023, var þjónustujöfnuður jákvæður um 290,3 milljarða króna en var jákvæður um 174,4 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 29% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuútflutnings á þriðja ársfjórðungi jókst um 42,1 milljarð króna eða um 16%, frá þriðja ársfjórðungi 2022 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum jukust um 23,7 milljarða samanborið við þriðja ársfjórðung 2022 eða um 17%. Tekjur af samgöngum og flutningum jukust um 17,6 milljarða eða um 22% frá þriðja ársfjórðungi 2022. Útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu drógust hins vegar saman um 11%.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá október 2022 til september 2023, var 910,8 milljarðar króna og jókst um 29% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 35%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum jukust einnig, um 33%, og útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu jukust um 12%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 17% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuinnflutnings á þriðja ársfjórðungi jókst um 9,7 milljarð króna, eða um 6%, frá þriðja ársfjórðungi 2022 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis drógust saman um 1%, samanborið við þriðja ársfjórðung 2022. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust hins vegar á milli ára, um 1,5 milljarða eða um 5%. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu jukust um 32% á milli ára.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá október 2022 til september 2023, var 620,5 milljarðar króna og jókst um 17% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Þar vógu þyngst útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis sem jukust um 17% miðað við tólf mánuðina þar á undan og útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu sem jukust um 31%. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust einnig eða um 17%.

Vöru- og þjónustujöfnuður jákvæður um 56,1 milljarð á þriðja ársfjórðungi
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* er áætlaður 217,3 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi 2023 en vöruinnflutningur 311,5 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 94,2 milljarð króna.

Á þriðja ársfjórðungi 2023 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 528,3 milljarðar króna samanborið við 531,1 milljarð á þriðja ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 472,2 milljarðar króna samanborið við 482,7 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 56,1 milljarð króna á þriðja ársfjórðungi 2023 en hann var jákvæður um 48,4 milljarð á sama tíma 2022.

Á tólf mánaða tímabili, frá október 2022 til september 2023, var vöru- og þjónustujöfnuðurinn áætlaður neikvæður um 19,1 milljarð króna en hann var jákvæður um 9 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöruskipta- og þjónustujöfnuð á þriðja ársfjórðungi 2023. Í september 2023 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 174,2 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 149,1 milljarður. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í september 2023 hafi verið jákvæður um 25,2 milljarða króna.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.