FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 25. NÓVEMBER 2022

Verðmæti þjónustuútflutnings á þriðja ársfjórðungi 2022 er áætlað 263,2 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 153,1 milljarður. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 110,1 milljarð króna en hann var jákvæður um 63,7 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá október 2021 til september 2022, var þjónustujöfnuður jákvæður um 162 milljarða króna en var jákvæður um 105,2 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 63% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuútflutnings á þriðja ársfjórðungi jókst um 96,5 milljarða króna, eða um 58%, frá þriðja ársfjórðungi 2021 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum jukust mikið, eins og undanfarna ársfjórðunga, samanborið við þriðja ársfjórðung 2021 eða um 48,3 milljarða eða um 55%. Tekjur af samgöngum og flutningum jukust um 40,6 milljarða og rétt tæplega tvöfölduðust frá þriðja ársfjórðungi 2021. Útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu jukust einnig, um 7,2 milljarða króna eða um 58%.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá október 2021 til september 2022, var 705,7 milljarðar króna og jókst um 271,6 milljarða miðað við sama tímabil árið áður eða um 63% á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 179,9 milljörðum. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum jukust einnig, rétt tæplega tvöfölduðust, og sömu sögu er að segja af útflutningstekjum af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu sem jukust um 22%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 65% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuinnflutnings á öðrum ársfjórðungi jókst um 50,1 milljarð króna, eða um 49%, frá þriðja ársfjórðungi 2021 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust töluvert eða um 26,3 milljarða samanborið við þriðja ársfjórðung 2021. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust einnig á milli ára, um 10,8 milljarða eða 55%. Sömu sögu er að segja af útgjöldum vegna annarrar viðskiptaþjónustu sem jukust um 15% á milli ára.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá október 2021 til september 2022, var 543,7 milljarðar króna og jókst um 214,8 milljarða miðað við sama tímabil árið áður eða um 65% á gengi hvors árs. Þar vó þyngst að útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis jukust áfram mikið eins og undanfarna ársfjórðunga. Einnig jukust útgjöld vegna samgangna og flutninga, eða um 55%, og útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu, um 38%.

Vöru- og þjónustujöfnuður neikvæður um 17,3 milljarða á tólf mánaða tímabili
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* er áætlaður 262,2 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi 2022 en öruinnflutningur 332,9 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 70,7 milljarða króna.

Á þriðja ársfjórðungi 2022 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 525,4 milljarðar króna samanborið við 360,4 milljarða á þriðja ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 486 milljarðar króna samanborið við 342,3 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 39,4 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2022 en var jákvæður um 18 milljarða á sama tíma 2021.

Á tólf mánaða tímabili, frá október 2021 til september 2022, var vöru- og þjónustujöfnuðurinn neikvæður um 17,3 milljarða króna en var neikvæður um 29,5 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan gögn um mánaðarlegan vöruskipta- og þjónustujöfnuð á þriðja ársfjórðungi 2022. Í september er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 168,6 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 178,5 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í september 2022 hafi verið neikvæður um 9,9 milljarða króna.

Endurskoðun meðferðar á leigusamningum er tengjast utanríkisverslun er ekki lokið.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustuviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.