Verðmæti þjónustuútflutnings á öðrum ársfjórðungi 2025 er áætlað 254,8 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 193 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 61,8 milljarða króna en hann var jákvæður um 65,7 milljarð á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2024 til júní 2025, var þjónustujöfnuður jákvæður um 270,3 milljarða króna en var jákvæður um 297,7 milljarða tólf mánuðina þar á undan.
Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 5% á öðrum ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuútflutnings á öðrum ársfjórðungi jókst um 12,3 milljarða króna, eða um 5%, frá öðrum ársfjórðungi 2024 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum jukust um 10,2 milljarða samanborið við annan ársfjórðung 2024 eða um 9%. Tekjur af samgöngum og flutningum jukust um 2 milljarða eða 3% frá öðrum ársfjórðungi 2024. Útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu drógust hins vegar saman um 27%.
Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2024 til júní 2025, var 1.015,3 milljarðar króna og jókst um 3% miðað við tólf mánuðina þar á undan á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 7%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum jukust einnig, eða um 2% á meðan útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu jukust um 3%.
Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 9% á öðrum ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuinnflutnings á öðrum ársfjórðungi jókst um 16,3 milljarða króna, eða 9%, frá öðrum ársfjórðungi 2024 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 14% samanborið við annan ársfjórðung 2024. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu jukust einnig á milli ára, um 19%, á meðan útgjöld vegna samgangna og flutninga drógust saman um 3%.
Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2024 til júní 2025, var 745 milljarðar króna og jókst um 9% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis jukust um 11% á umræddu tímabili. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu jukust um 9% og útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust um 3%.
Vöru- og þjónustujöfnuður neikvæður um 73,4 milljarða á öðrum ársfjórðungi
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* er áætlaður 231,9 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi 2025 en vöruinnflutningur 367,1 milljarður. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 135,2 milljarða króna.
Á öðrum ársfjórðungi 2025 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 486,7 milljarðar króna samanborið við 483,1 milljarð á öðrum ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 560,1 milljarður króna samanborið við 506 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður neikvæður um 73,4 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2025 en var neikvæður um 22,9 milljarð á sama tíma 2024.
Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2024 til júní 2025, var vöru- og þjónustujöfnuður áætlaður neikvæður um 128,5 milljarð króna en hann var neikvæður um 5,1 milljarð á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.
Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöru- og þjónustujöfnuð á öðrum ársfjórðungi 2025. Í júní 2025 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 166,7 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 166,3 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í júní 2025 hafi verið jákvæður um 0,5 milljarða króna.
*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.
Talnaefni
Vöru- og þjónustuviðskipti
Þjónustuviðskipti