FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 24. ÁGÚST 2023

Verðmæti þjónustuútflutnings á öðrum ársfjórðungi 2023 er áætlað 246,5 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 158,7 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 87,7 milljarða króna en hann var jákvæður um 42,5 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2022 til júní 2023, var þjónustujöfnuður jákvæður um 259,4 milljarða króna en var jákvæður um 123,7 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 44% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuútflutnings á öðrum ársfjórðungi jókst um 61,4 milljarða króna eða um 33%, frá öðrum ársfjórðungi 2022 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum jukust um 27,2 milljarða samanborið við annan ársfjórðung 2022 eða um 32%. Tekjur af samgöngum og flutningum jukust um 20 milljarða eða um 35% frá öðrum ársfjórðungi 2022. Útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu jukust einnig, eða um 38% og sömu sögu er að segja af útflutningstekjum af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu sem jukust um 32%.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2022 til júní 2023, var 868,5 milljarðar króna og jókst um 266,9 milljarða miðað við sama tímabil árið áður eða um 44% á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 135,6 milljörðum eða um 52%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum jukust einnig, um 54%, og útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu jukust um 30%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 27% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuinnflutnings á öðrum ársfjórðungi jókst um 16,1 milljarð króna, eða um 11%, frá öðrum ársfjórðungi 2022 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 3,6 milljarða, eða um 6%, samanborið við annan ársfjórðung 2022. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust einnig á milli ára, um 3,1 milljar eða um 12%. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu jukust um 22% á milli ára.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2022 til júní 2023, var 609 milljarðar króna og jókst um 131,1 milljarð miðað við sama tímabil árið áður eða um 27% á gengi hvors árs. Þar vógu þyngst útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis sem jukust um 37% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Einnig jukust útgjöld vegna samgangna og flutninga, eða um 29%, og útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu um 27%.

Vöru- og þjónustujöfnuður jákvæður um 3,6 milljarða
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* er áætlaður 230,2 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi 2023 en vöruinnflutningur 314,3 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 84,1 milljarð króna.

Á öðrum ársfjórðungi 2023 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 476,6 milljarðar króna samanborið við 439,5 milljarða á öðrum ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 473 milljarðar króna samanborið við 436,5 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 3,6 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2023 en hann var jákvæður um 3,1 milljarð á sama tíma 2022.

Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2022 til júní 2023, var vöru- og þjónustujöfnuðurinn áætlaður neikvæður um 25,5 milljarða króna en hann var neikvæður um 17,6 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöruskipta- og þjónustujöfnuð á öðrum ársfjórðungi 2023. Í júní 2023 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 176 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 173,2 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í júní 2023 hafi verið jákvæður um 2,9 milljarða króna.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.