FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 23. MAÍ 2024

Verðmæti þjónustuútflutnings á fyrsta ársfjórðungi 2024 er áætlað 168,7 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 155,7 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 13 milljarða króna en hann var jákvæður um 25,7 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2023 til mars 2024, var þjónustujöfnuður jákvæður um 275,6 milljarða króna en var jákvæður um 214,4 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 13% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuútflutnings á fyrsta ársfjórðungi jókst um 1,1 milljarð króna, eða um 1%, frá fyrsta ársfjórðungi 2023 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum drógust saman um 1,4 milljarða samanborið við fyrsta ársfjórðung 2023 eða um 2%. Tekjur af samgöngum og flutningum jukust um 2,8 milljarða eða um 6% frá fyrsta ársfjórðungi 2023. Útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu jukust um 26%.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2023 til mars 2024, var 912,6 milljarðar króna og jókst um 13% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 15%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum jukust einnig, um 19%, og útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu jukust um 3%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 7% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuinnflutnings á fyrsta ársfjórðungi jókst um 13,8 milljarða króna, eða um 10%, frá fyrsta ársfjórðungi 2023 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 5% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2023. Útgjöld vegna samgangna og flutninga drógust hins vegar saman á milli ára, um 1%. Þá jukust útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu um 10% á milli ára.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2023 til mars 2024, var 637 milljarðar króna og jókst um 7% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Þar vógu þyngst útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu sem jukust um 18%. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust einnig, eða um 4%. Útgjöldum Íslendinga á ferðalögum erlendis jukust einnig lítillega eða um 1%.

Vöru- og þjónustujöfnuður neikvæður um 42,7 milljarða á fyrsta ársfjórðungi
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* er áætlaður 223,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2024 en vöruinnflutningur 279,6 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 55,7 milljarða króna.

Á fyrsta ársfjórðungi 2023 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 392,5 milljarðar króna samanborið við 413,4 milljarða á fyrsta ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 435,2 milljarðar króna samanborið við 432,7 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður neikvæður um 42,7 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2024 en hann var neikvæður um 19,2 milljarða á sama tíma 2023.

Á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2023 til mars 2023, var vöru- og þjónustujöfnuðurinn áætlaður neikvæður um 25,7 milljarða króna en hann var neikvæður um 15,7 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöruskipta- og þjónustujöfnuð á fyrsta ársfjórðungi 2024. Í mars 2023 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 126,2 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 146,2 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í mars 2024 hafi verið neikvæður um 20 milljarða króna.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.