FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 24. MAÍ 2023

Verðmæti þjónustuútflutnings á fyrsta ársfjórðungi 2023 er áætlað 162,9 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 141,5 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 21,4 milljarða króna en hann var jákvæður um 5,9 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2022 til mars 2023, var þjónustujöfnuður jákvæður um 202,1 milljarð króna en var jákvæður um 89,9 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 41%
Verðmæti þjónustuútflutnings á fyrsta ársfjórðungi jókst um 47,1 milljarð króna eða um 41%, frá fyrsta ársfjórðungi 2022 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum jukust um 31 milljarð samanborið við fyrsta ársfjórðung 2022 eða um74%. Tekjur af samgöngum og flutningum jukust um 13,3 milljarða eða um 41% frá fyrsta ársfjórðungi 2022. Útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu drógust hins vegar saman um 5%.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2022 til mars 2023, var 785,3 milljarðar króna og jókst um 283,5 milljarða miðað við sama tímabil árið áður eða um 56% á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 159,6 milljörðum eða um 80%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum jukust einnig, um 77%, og útflutningstekjur af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu jukust um 16%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 42% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuinnflutnings á fyrsta ársfjórðungi jókst um 31,5 milljarða króna, eða um 29%, frá fyrsta ársfjórðungi 2022 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 13,6 milljarða, eða um 40%, samanborið við fyrsta ársfjórðung 2022. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust einnig á milli ára, um 6,6 milljarð eða um 30%. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu jukust um 41% á milli ára.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2022 til mars 2023, var 583,3 milljarðar króna og jókst um 171,3 milljarða miðað við sama tímabil árið áður eða um 42% á gengi hvors árs. Þar vógu þyngst útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis sem jukust um 81% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Einnig jukust útgjöld vegna samgangna og flutninga, eða um 38%, og útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu um 30%.

Vöru- og þjónustujöfnuður neikvæður um 24,2 milljarða
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* er áætlaður 243,3 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2023 en vöruinnflutningur 288,9 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 45,7 milljarða króna.

Á fyrsta ársfjórðungi 2023 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 406,2 milljarðar króna samanborið við 346,7 milljarða á fyrsta ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 430,4 milljarðar króna samanborið við 359,9 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður neikvæður um 24,2 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2023 en hann var neikvæður um 13,3 milljarða á sama tíma 2022.

Á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2022 til mars 2023, var vöru- og þjónustujöfnuðurinn áætlaður jákvæður um 0,5 milljarða króna en hann var jákvæður um 10,8 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöruskipta- og þjónustujöfnuð á fyrsta ársfjórðungi 2023. Í mars 2023 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 147,5 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 157,6 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í mars 2023 hafi verið neikvæður um 10,1 milljarð króna.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.