FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 01. MARS 2017

Samkvæmt bráðabirgðatölum var vöru- og þjónustujöfnuður 2016, eins og hann birtist í þjóðhagsreikningum og greiðslujöfnuði, jákvæður um 158,8 milljarða en var jákvæður um 166,6 milljarða á árinu 2015 á gengi hvors árs. Umreiknaður vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 101,5 milljarða króna en þjónustujöfnuður hagstæður um 260,3 milljarða. Heildarútflutningstekjur vegna vöru- og þjónustuviðskipta námu 1.189,3 milljörðum króna en heildarinnflutningur á vörum og þjónustu nam 1.030,4 milljörðum króna. Þessar upplýsingar koma fram í brúartöflu á vef Hagstofunnar sem samræmir staðla vöruviðskipta og greiðslujafnaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.