FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 01. JÚNÍ 2017

Samkvæmt bráðabirgðatölum var vöru- og þjónustujöfnuður á fyrsta ársfjórðungi 2017, eins og hann birtist í þjóðhagsreikningum og greiðslujöfnuði, jákvæður um 8 milljarða en hann var jákvæður um 3,5 milljarða á sama tíma árið 2016, á gengi hvors árs. Umreiknaður vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 35,1 milljarð króna en þjónustujöfnuður var hagstæður um 43,1 milljarð. Heildarútflutningstekjur vegna vöru- og þjónustuviðskipta námu 236,9 milljörðum króna en heildarinnflutningur á vörum og þjónustu nam 228,9 milljörðum króna. Þessar upplýsingar koma fram í brúartöflu á vef Hagstofunnar sem samræmir staðla vöruviðskipta og greiðslujafnaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.