FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 01. SEPTEMBER 2017

Samkvæmt bráðabirgðatölum var vöru- og þjónustujöfnuður á öðrum ársfjórðungi 2017, eins og hann birtist í þjóðhagsreikningum og greiðslujöfnuði, jákvæður um 14,7 milljarða en hann var jákvæður um 25,1 milljarð á sama tíma árið 2016, á gengi hvors árs. Umreiknaður vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 45,8 milljarða króna en þjónustujöfnuður var hagstæður um 60,5 milljarða.

Heildarútflutningstekjur vegna vöru- og þjónustuviðskipta námu 300,7 milljörðum króna en heildarinnflutningur á vörum og þjónustu nam 286 milljörðum króna.

Í bráðabirgðatölum fyrir fyrri helming ársins 2017 var vöru- og þjónustujöfnuður við útlönd því jákvæður um 20,3 milljarða en var jákvæður um 27,3 milljarða á fyrri helming ársins 2016.

Í lokatölum fyrir árið 2016 var vöru- og þjónustujöfnuður jákvæður um 155,4 milljarða en var jákvæður um 163,9 milljarða á árinu 2015.

Þessar upplýsingar koma fram í brúartöflu á vef Hagstofunnar sem samræmir staðla vöruviðskipta og greiðslujafnaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.