FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. APRÍL 2006


Vöruskiptajöfnuður

Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 19,9 milljarða króna og inn fyrir 33,3 milljarða króna fob. Vöruskiptin í mars voru því óhagstæð um 13,4 milljarða króna en í mars árið áður voru þau óhagstæð um 6,3 milljarða króna á föstu gengi¹.

Fyrstu þrjá mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 48,8 milljarða króna en inn fyrir 80,7 milljarða króna fob. Halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam tæpum 32,0 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 15,3 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 16,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu þrjá mánuði ársins var 2,5 milljörðum eða 5,4% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 58% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,6% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 12,4% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukins álútflutnings.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu þrjá mánuði ársins var 19,2 milljörðum eða 31,1% meira á föstu gengi¹ en árið áður. Mest varð aukning í innflutningi á fjárfestingavöru og hrá- og rekstrarvöru. Á móti kom samdráttur í innflutningi flugvéla.

Vöruskiptin við útlönd janúar–mars 2006
Millj. kr á gengi ársins 2006 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Janúar-mars
Mars  Janúar-mars
  2005 2006 2005 2006
Útflutningur alls fob 17.559 19.916 46.262 48.751 5,4
Innflutningur alls fob 23.841 33.295 61.572 80.731 31,1
Vöruskiptajöfnuður -6.282 -13.378 -15.310 -31.980 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–mars 2005 og 2006
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.- mars
Mars Janúar-mars
  2005 2006 2005 2006
Útflutningur alls fob 16.396,6 19.916,2 46.947,3 48.751,1 5,4
Sjávarafurðir 10.970,8 11.576,1 28.389,2 28.420,4 1,6
Landbúnaðarvörur 338,8 314,5 1.114,8 1.133,7 3,2
Iðnaðarvörur 4.791,2 7.758,1 16.513,7 18.295,6 12,4
Aðrar vörur 295,8 267,5 929,6 901,4 -1,6
Innflutningur alls fob 22.262,2 33.294,5 62.484,0 80.730,8 31,1
Matvörur og drykkjarvörur 1.798,6 1.909,0 4.522,4 4.567,1 2,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 5.527,3 7.873,8 14.314,3 21.154,0 50,0
Eldsneyti og smurolíur 2.197,3 4.266,7 6.035,7 7.500,6 26,1
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 5.128,5 7.711,5 13.006,8 20.142,8 57,2
Flutningatæki 3.586,8 6.483,0 14.188,9 15.301,8 9,4
Neysluvörur ót.a. 3.998,9 5.014,6 10.341,4 11.980,5 17,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 24,8 35,9 74,4 84,0 14,5
Vöruskiptajöfnuður -5.865,6 -13.378,3 -15.536,6 -31.979,6 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,5% lægra mánuðina janúar–mars 2006 en sömu mánuði fyrra árs.
Í mars 2006 var meðalverð erlends gjaldeyris 7,1% hærra en í mars árið áður.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.