FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. JÚNÍ 2005


Vöruskiptajöfnuður

Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,0 milljarða króna og inn fyrir 24,0 milljarða króna fob. Vöruskiptin í maí voru því óhagstæð um 8,0 milljarða króna en í maí árið áður voru þau óhagstæð um 3,3 milljarða á föstu gengi¹. 

Fyrstu fimm mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 79,7 milljarða króna en inn fyrir 103,9 milljarða króna. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 24,2 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 6,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 17,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu fimm mánuði ársins var 3,2 milljörðum eða 4,2% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 61% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,4% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 34% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,3% meira en árið áður. Aukning varð í útflutningi á heilum frystum fiski og áli en samdráttur varð í útflutningi á frystri rækju og lyfjum og lækningatækjum.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu fimm mánuði ársins var 20,7 milljörðum eða 24,9% meira á föstu gengi1 en árið áður. Aukning varð í flestum liðum innflutnings, mest varð aukning í innflutningi á flutningatækjum, sérstaklega fólksbílum, hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru.

Vöruskiptin við útlönd janúar – maí 2005

Breytingar frá
Millj. kr á gengi ársins 2005 fyrra ári á

Maí

 Janúar-maí

föstu gengi, %1

2004

2005

2004

2005

Janúar–maí

Útflutningur alls fob

13.917 15.958 76.482 79.728 4,2

Innflutningur alls fob

17.233 23.960 83.176 103.884 24,9
Vöruskiptajöfnuður

-3.317

-8.002

-6.694

-24.156

·

1  Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 8,0% lægra í maí 2005 en árið áður. Í maí 2005 var meðalverð erlends gjaldeyris 7,5% lægra en í maí árið áður


Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar – maí  2004 og 2005

 

           Breytingar

Millj. kr. á gengi hvors árs

frá fyrra ári

á föstu

Maí

Janúar-maí

gengi 1, %

2004

2005

2004

2005

Jan.-maí

Útflutningur alls fob

15.044,8 15.958,2 83.168,6 79.728,4 4,2

Sjávarafurðir

9.091,1 10.712,1 50.526,1 48.955,8 5,4

Landbúnaðarvörur

616,2 279,3 1.832,8 1.668,1 -1,0

Iðnaðarvörur

4.963,5 4.622,5 28.885,5 26.916,4 1,3

Aðrar vörur

374,1 344,3 1.924,1 2.188,1 23,7

Innflutningur alls fob

18.630,4 23.960,0 90.448,2 103.883,9 24,9

Matvörur og drykkjarvörur

1.535,4 1.902,3 7.711,1 7.972,8 12,4

Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.

4.594,0 5.871,6 23.971,6 26.306,1 19,3

Eldsneyti og smurolíur

1.656,9 2.491,9 7.455,1 9.557,8 39,4

Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)

4.365,1 4.769,9 20.965,2 22.514,5 16,8

Flutningatæki

3.162,3 5.148,7 13.206,9 19.479,2 60,4

Neysluvörur ót.a.

3.296,2 3.741,4 17.060,3 17.912,1 14,2

Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)

20,6 34,2 78,1 141,3

·

Vöruskiptajöfnuður

-3.585,6 -8.001,8 -7.279,6 -24.155,5

·

1 Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 8,0% lægra jan-maí 2005 en árið áður.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.