FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. JÚLÍ 2005


Vöruskiptajöfnuður
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 17,1 milljarð króna og inn fyrir 27,3 milljarða króna fob. Vöruskiptin í júní voru því óhagstæð um 10,2 milljarða króna en í júní árið áður voru þau óhagstæð um 6,5 milljarða á föstu gengi¹. 

Fyrstu sex mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 96,8 milljarða króna en inn fyrir 131,1 milljarð króna. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 34,3 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 13,3 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21,0 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu sex mánuði ársins var 5,9 milljörðum eða 6,5% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 61% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,4% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 34% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,3% meira en árið áður. Aukning varð í útflutningi á ferskum og frystum fiski og áli en samdráttur varð í útflutningi á frystri rækju og lyfjum og lækningatækjum.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu sex mánuði ársins var 26,9 milljörðum eða 25,8% meira á föstu gengi¹ en árið áður. Aukning varð í flestum liðum innflutnings, mest varð aukning í innflutningi á flutningatækjum, sérstaklega fólksbílum, eldsneyti, hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru.

Vöruskiptin við útlönd janúar–júní 2005
Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %1  Janúar-júní
Millj. kr á gengi ársins 2005
Júní  Janúar-júní
  2004 2005 2004 2005
Útflutningur alls fob 14.455 17.069 90.913 96.786 6,5
Innflutningur alls fob 20.975 27.257 104.188 131.108 25,8
Vöruskiptajöfnuður -6.519 -10.188 -13.275 -34.322 ·
1  Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 8,3% lægra í júní 2005 en árið áður. Í júní 2005 var meðalverð erlends gjaldeyris 9,4% lægra en í júní árið áður.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–júní  2004 og 2005
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %1  Jan.-júní
Júní Janúar-júní
  2004 2005 2004 2005
Útflutningur alls fob 15.951,5 17.069,1 99.120,1 96.785,8 6,5
Sjávarafurðir 8.967,5 10.198,0 59.493,7 59.142,2 8,4
Landbúnaðarvörur 426,1 236,7 2.258,9 1.904,8 -8,1
Iðnaðarvörur 6.182,3 6.000,0 35.067,8 32.916,4 2,3
Aðrar vörur 375,6 634,4 2.299,7 2.822,5 33,8
Innflutningur alls fob 23.145,8 27.257,3 113.594,0 131.108,1 25,8
Matvörur og drykkjarvörur 2.063,6 1.886,6 9.774,7 9.859,3 10,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 6.407,5 6.265,6 30.379,2 32.554,4 16,8
Eldsneyti og smurolíur 1.022,5 2.213,8 8.477,6 11.771,6 51,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 4.992,1 6.657,9 25.957,2 29.161,0 22,5
Flutningatæki 5.032,7 6.262,9 18.239,6 25.738,5 53,8
Neysluvörur ót.a. 3.595,0 3.959,5 20.655,3 21.870,8 15,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 32,4 11,0 110,4 152,3 50,4
Vöruskiptajöfnuður -7.194,2 -10.188,2 -14.473,9 -34.322,3 ·
1 Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 8,3% lægra janúar-júní 2005 en árið áður.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.