FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. ÁGÚST 2005


Vöruskiptajöfnuður

Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 13,7 milljarða króna og inn fyrir 23,9 milljarða króna fob. Vöruskiptin í júlí voru því óhagstæð um 10,2 milljarða króna en í júlí árið áður voru þau óhagstæð um 5,6 milljarða á föstu gengi¹. 

Fyrstu sjö mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 111,9 milljarða króna en inn fyrir 159,4 milljarða króna. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 47,5 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 18,9 milljarða á föstu gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 28,6 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 5,9 milljörðum eða 5,6% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 60% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,0% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 34% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,5% meira en árið áður. Aukning varð í útflutningi á ferskum og frystum fiski og áli en samdráttur varð í útflutningi á frystri rækju og lyfjum og lækningatækjum. Aukning varð í útflutningi skipa og flugvéla en stærstur hluti aukningarinnar er leiðrétting vegna nýrra upplýsinga um útflutning flugvéla fyrr á þessu ári (1,8 milljarðar).
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 34,5 milljörðum eða 27,6% meira á föstu gengi¹ en árið áður. Aukning varð í flestum liðum innflutnings, mest varð aukning í innflutningi á flutningatækjum, sérstaklega fólksbílum, fjárfestingarvöru, hrá- og rekstrarvöru og eldsneyti. Aukning varð í innflutningi flugvéla en stærstur hluti aukningarinnar er leiðrétting vegna nýrra upplýsinga um innflutning flugvéla fyrr á þessu ári (4,4 milljarðar).

Vöruskiptin við útlönd janúar–júlí 2005
Millj. kr á gengi ársins 2005 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Janúar-júlí
júlí  Janúar-júlí
  2004 2005 2004 2005
Útflutningur alls fob 15.085 13.714 105.988 111.883 5,6
Innflutningur alls fob 20.660 23.925 124.905 159.398 27,6
Vöruskiptajöfnuður -5.575 -10.212 -18.917 -47.515 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–júlí  2004 og 2005
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi¹, % Jan.-júlí
júlí Janúar-júlí
  2004 2005 2004 2005
Útflutningur alls fob 16.840,0 13.713,6 115.960,0 111.883,4 5,6
Sjávarafurðir 10.554,2 7.723,6 70.047,9 66.617,7 4,0
Landbúnaðarvörur 259,9 249,0 2.518,8 2.153,8 -6,5
Iðnaðarvörur 5.567,0 5.286,3 40.640,1 38.065,1 2,5
Aðrar vörur 453,5 454,8 2.753,1 5.046,9 ·
Innflutningur alls fob 23.063,5 23.925,3 136.657,4 159.398,1 27,6
Matvörur og drykkjarvörur 1.631,9 1.621,1 11.406,6 11.480,4 10,1
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 5.697,5 6.208,6 36.076,7 38.761,5 17,5
Eldsneyti og smurolíur 2.138,9 3.098,6 10.616,5 14.870,2 53,2
Fjárfest.vörur
(þó ekki flutn.tæki) 4.976,6 5.414,1 30.933,9 34.574,6 22,3
Flutningatæki 5.380,5 4.119,3 23.620,1 34.229,0 58,5
Neysluvörur ót.a. 3.220,3 3.443,9 23.875,6 25.310,2 16,0
Vörur ót.a (t.d. endurs. vörur) 17,6 19,8 128,0 172,1 47,1
Vöruskiptajöfnuður -6.223,5 -10.211,7 -20.697,4 -47.514,7 ·


¹Við útreikning fasts gengis er miðað við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 8,6% lægra mánuðina janúar–júlí 2005 en sömu mánuði fyrra árs. Í júlí 2005 var meðalverð erlends gjaldeyris 10,4% lægra en í júlí árið áður.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.