FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MARS 2005

Vöruskiptajöfnuður
Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,4 milljarða króna og inn fyrir 18,7 milljarða króna fob. Vöruskiptin í febrúar voru því óhagstæð um 2,3 milljarða króna en í febrúar árið áður voru þau hagstæð um 0,1 milljarð á föstu gengi¹. 
     Fyrstu tvo mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 30,3 milljarða króna en inn fyrir 36,0 milljarða króna. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 5,7 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 0,4 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 6,1 milljarði króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu tvo mánuði ársins var 1,4 milljarði eða 4,7% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 58% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,2% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,1% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings en á móti kom samdráttur í útflutningi lyfja og lækningatækja.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu tvo mánuði ársins var 7,5 milljörðum eða 26,1% meira á föstu gengi1 en árið áður. Mest varð aukning í innflutningi á flutningatækjum, eldsneyti og smurolíu og fjárfestingarvöru.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.