FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 01. DESEMBER 2010

Útflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi 2010 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 97,3 milljarðar en innflutningur á þjónustu 62,0 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á þriðja ársfjórðungi var því jákvæður um 35,3 milljarða króna.

Samgöngur er stærsti þjónustuliður bæði í útflutningi og innflutningi og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 18,6 milljarðar. Afgangur ferðaþjónustu var um 13,7 milljarðar og afgangur af annarri þjónustu um 3,0 milljarðar.

Þjónustuviðskipti við útlönd      
  Alls 1. ársfj. 2010 2. árfj. 2010 3. árfj. 2010
Verðmæti í milljónum króna á gengi hvers ársfjórðungs    
Útflutt þjónusta 232.897,3 58.573,9 77.054,4 97.269,0
Samgöngur 98.129,3 24.889,0 31.453,2 41.787,1
Ferðalög 61.629,5 11.032,5 19.363,1 31.233,9
Önnur þjónusta 73.138,5 22.652,5 26.238,1 24.248,0
         
Innflutt þjónusta 183.583,8 58.879,5 62.746,8 61.957,5
Samgöngur 63.794,8 19.083,6 21.531,8 23.179,3
Ferðalög 48.681,1 14.516,3 16.615,8 17.548,9
Önnur þjónusta 71.108,0 25.279,6 24.599,2 21.229,3
         
Þjónustujöfnuður 49.313,5 -305,6 14.307,6 35.311,5
Samgöngur 34.334,5 5.805,3 9.921,4 18.607,8
Ferðalög 12.948,5 -3.483,8 2.747,3 13.685,0
Önnur þjónusta 2.030,5 -2.627,1 1.638,9 3.018,8

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.