FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MAÍ 2011

Útflutningur á þjónustu á fyrsta ársfjórðungi 2011 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 58,2 milljarðar en innflutningur á þjónustu 60,4 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á fyrsta ársfjórðungi var því neikvæður um 2,2 milljarða króna.

Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi á þjónustu og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 9,3 milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu um 8,1 milljarði. Halli á ferðaþjónustu var um 3,5 milljarðar.

Næsta fréttatilkynning um þjónustuviðskipti við útlönd verður birt þann 31. ágúst. Þar verður að finna heildar niðurstöður fyrir árið 2010 þar sem niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung eru endurskoðaðar auk bráðabirgðatalna um annan ársfjórðung 2011.

Þjónustuviðskipti við útlönd
  1. ársfj. 2011
Verðmæti í milljónum króna  
Útflutt þjónusta 58.182,5
Samgöngur 27.550,5
Ferðalög 11.409,8
Önnur þjónusta 19.222,2
   
Innflutt þjónusta 60.428,5
Samgöngur 18.218,4
Ferðalög 14.915,9
Önnur þjónusta 27.294,2
   
Þjónustujöfnuður -2.246,0
Samgöngur 9.332,1
Ferðalög -3.506,1
Önnur þjónusta -8.072,0

Talnefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.