FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. NÓVEMBER 2018

Þjónustujöfnuður jákvæður um 123,7 milljarða á þriðja ársfjórðungi
Heildartekjur af þjónustuútflutningi á þriðja ársfjórðungi 2018 voru, samkvæmt bráðabirgðatölum, tæpar 248,5 milljarðar króna. Heildarútgjöld vegna innfluttrar þjónustu voru 124,7 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 123,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi en var jákvæður um 115,9 milljarða á sama tíma árið áður, á gengi hvors árs.

Þjónustujöfnuður við útlönd fyrstu níu mánuðum ársins 2018 var jákvæður um 209,9 milljarða króna en var jákvæður um 219,5 milljarða á sama tíma árið áður, á gengi hvors árs. Þjónustujöfnuður

Verðmæti þjónustuútflutnings hækkar á milli ára
Á þriðja ársfjórðungi 2018 var verðmæti þjónustuútflutnings 23,2 milljörðum hærra en á sama tímabili árið áður eða 10,3% á gengi hvors árs. Útflutningur á ferðaþjónustu var 124,5 milljarðar eða 50,1% af heildarútflutningi og var 2,2% hærri en á sama tíma árið áður. Tekjur af samgöngum og flutningum námu 84 milljörðum og hækkuðu um 4,8% miðað við sama tíma árið áður.

Fyrstu níu mánuði þessa árs var verðmæti þjónustuútflutnings 36,6 milljörðum hærra en á sama tímabili árið áður eða 7,1% á gengi hvors árs. Útflutningur á ferðaþjónustu var stærsti liðurinn, 269,2 milljarðar eða 48,9% af heildarútflutningi og var 3,1% hærri en á sama tíma árið áður.

Innflutningur vegna ferðalaga eykst á fyrstu níu mánuðum ársins
Á þriðja ársfjórðungi 2018 var verðmæti þjónustuinnflutnings 15,4 milljörðum hærra en sama tíma árið áður eða 14% á gengi hvors ár. Útgjöld vegna innfluttrar ferðaþjónustu námu 54,7 milljörðum og hækkuðu um 13% frá sama tíma árið áður. Fyrstu níu mánuði þessa árs var verðmæti þjónustuinnflutnings 46,2 milljörðum hærra en á sama tímabili árið áður eða 15,7% á gengi hvors árs. Ferðalög voru stærsti liðurinn, 147,7 milljarðar eða 43,3% af heildarinnflutningi og voru 14% hærri en á sama tíma árið áður.

Verðmæti útflutnings og innflutnings á þjónustu 2017 og 2018
  Milljónir króna á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % 1.-3. ársfjórðungur
  3. ársfjórðungur 1. -3. ársfjórðungur
 2017201820172018
Útflutt þjónusta225.283,3248.450,6514.389,7550.996,07,1
Samgöngur og flutningar80.162,584.030,6180.765,6187.740,43,9
Ferðalög121.817,4124.478,6261.044,0269.194,23,1
Önnur viðskiptaþjónusta6.194,79.776,920.662,322.725,110,0
Aðrir þjónustuliðir17.108,730.164,551.917,771.336,337,4
Innflutt þjónusta109.381,3124.748,3294.928,6341.113,215,7
Samgöngur og flutningar18.761,320.856,748.615,255.425,014,0
Ferðalög48.442,954.724,2129.603,3147.714,614,0
Önnur viðskiptaþjónusta21.315,826.355,755.882,268.864,723,2
Aðrir þjónustuliðir20.861,222.811,860.828,069.109,013,6
Þjónustujöfnuður115.902,0123.702,2219.461,1209.882,7 

Mánaðarleg þjónusta
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan gögn um mánaðarlegan þjónustujöfnuð fyrir 2018. Áður höfðu fyrstu átta mánuðir ársins verið gefnir út en í þessari útgáfu bætast við tölur fyrir september. Útflutt þjónusta er áætluð tæpir 77,5 milljarðar í september og innflutt þjónusta er áætluð 41,5 milljarðar. Þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 35,9 milljarða í september 2018 Gögn um mánaðarlega þjónustu 2018 má finna í töflunni Þjónustuviðskipti við útlönd eftir mánuðum 2018.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.