FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 01. DESEMBER 2016

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 2. desember 2016 frá upprunalegri útgáfu.

Heildartekjur af þjónustuútflutningi á þriðja ársfjórðungi 2016 voru, samkvæmt bráðabirgðatölum, 229,4 milljarðar króna en útgjöld vegna innfluttrar þjónustu 107,8 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 121,6 milljarða króna en var jákvæður um 94 milljarða á sama tíma árið áður, á gengi hvors árs.

Ferðaþjónusta var stærsti liðurinn í inn- og útfluttri þjónustu á ársfjórðungnum og nam afgangur hennar 72,8 milljörðum. Afgangur af samgöngum og flutningum nam 62,8 milljörðum. Mestur halli var af annarri viðskiptaþjónustu eða 20,3 milljarðar.

Þjónustuviðskipti við útlönd 2016        
  Alls  1. ársfj. 2016 2. ársfj. 2016 3. ársfj. 2016
Verðmæti í milljónum króna        
Útflutt þjónusta 505.190,6 112.944,0 162.884,8 229.361,8
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara 6.820,0 3.358,9 3.461,1 0,0
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. 3.959,1 1.320,1 1.309,0 1.330,0
3. Samgöngur og flutningar 171.436,5 37.021,6 54.607,8 79.807,1
4. Ferðalög 234.606,9 45.418,6 74.989,2 114.199,1
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð 1.167,7 269,4 352,0 546,3
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta 2.019,4 678,9 705,5 635,0
7. Fjármálaþjónusta 10.823,8 3.436,4 3.736,3 3.651,1
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. 13.510,8 1.521,6 2.082,6 9.906,6
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta 24.100,0 7.526,2 8.639,1 7.934,6
10. Önnur viðskiptaþjónusta 28.215,1 9.332,2 9.480,1 9.402,8
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta 6.761,4 2.470,2 2.932,0 1.359,3
12. Opinber þjónusta ót.a. 1.770,1 590,0 590,0 590,0
         
Innflutt þjónusta 289.401,2 83.337,0 98.304,3 107.759,8
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara 0,0 0,0 0,0 0,0
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. 14.369,0 4.607,4 5.188,2 4.573,3
3. Samgöngur og flutningar 46.397,4 13.780,9 15.602,9 17.013,5
4. Ferðalög 111.504,5 30.180,4 39.900,6 41.423,6
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð 2.000,1 514,0 633,6 852,6
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta 3.653,0 1.681,3 1.031,8 940,0
7. Fjármálaþjónusta 5.051,4 1.524,2 1.206,4 2.320,8
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. 8.518,3 3.175,0 2.524,2 2.819,0
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta 17.028,9 6.025,3 5.180,3 5.823,3
10. Önnur viðskiptaþjónusta 73.572,7 19.516,2 24.343,6 29.712,9
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta 5.916,9 1.975,8 2.007,0 1.934,1
12. Opinber þjónusta ót.a. 1.388,9 356,4 685,6 346,8
         
Þjónustujöfnuður 215.789,4 29.606,9 64.580,5 121.602,0
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara 6.820,0 3.358,9 3.461,1 0,0
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. -10.409,9 -3.287,4 -3.879,2 -3.243,3
3. Samgöngur og flutningar 125.039,1 23.240,7 39.004,8 62.793,5
4. Ferðalög 123.102,4 15.238,2 35.088,7 72.775,5
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð -832,5 -244,6 -281,6 -306,3
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta -1.633,7 -1.002,4 -326,3 -304,9
7. Fjármálaþjónusta 5.772,4 1.912,2 2.529,9 1.330,3
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. 4.992,4 -1.653,5 -441,7 7.087,5
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta 7.071,1 1.500,9 3.458,8 2.111,4
10. Önnur viðskiptaþjónusta -45.357,7 -10.184,1 -14.863,5 -20.310,1
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta 844,5 494,4 925,0 -574,8
12. Opinber þjónusta ót.a. 381,1 233,6 -95,6 243,2

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.