FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 25. NÓVEMBER 2009

Útflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi var samkvæmt bráðabirgðatölum 92,3 milljarðar en innflutningur á þjónustu 71,5 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd á þriðja ársfjórðungi var því jákvæður um 20,8 milljarða króna.

Samgöngur vega mest þjónustuliða og mestur afgangur varð vegna þeirrar þjónustu, eða um 11,9 milljarðar en afgangur vegna ferðaþjónustu reyndist vera um 10,9 milljarðar. Aftur á móti var halli á annarri þjónustu en samgöngum og ferðaþjónustu um tæpan 2,1 milljarð.

Þjónustuviðskipti við útlönd 2009
  1. ársfj. 2. ársfj. 3. ársfj. Alls
Verðmæti í milljónum króna á gengi hvers ársfjórðungs
Útflutt þjónusta 49.779,1 72.188,5 92.252,3 214.219,9
Samgöngur 22.541,4 29.073,3 38.094,0 89.708,7
Ferðalög 10.556,7 19.974,3 35.545,0 66.076,0
Önnur þjónusta 16.680,9 23.141,0 18.613,3 58.435,2
Innflutt þjónusta 51.494,8 60.590,7 71.489,0 183.574,5
Samgöngur 17.932,7 20.378,5 26.162,5 64.473,7
Ferðalög 16.740,9 21.276,0 24.635,1 62.652,0
Önnur þjónusta 16.821,2 18.936,2 20.691,4 56.448,8
Þjónustujöfnuður -1.715,7 11.597,9 20.763,2 30.645,4
Samgöngur 4.608,7 8.694,8 11.931,5 25.235,1
Ferðalög -6.184,2 -1.301,7 10.909,8 3.424,0
Önnur þjónusta -140,3 4.204,8 -2.078,1 1.986,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.