Útflutningur á þjónustu á fyrsta ársfjórðungi 2012 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 64,5 milljarðar en innflutningur á þjónustu 69,6 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á fyrsta ársfjórðungi var því neikvæður um 5,1 milljarð króna.
Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi á þjónustu og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 10,1 milljarður. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu um 8,8 milljarðar. Halli á ferðaþjónustu var um 6,3 milljarðar.
Næsta fréttatilkynning um þjónustuviðskipti við útlönd verður birt þann 31. ágúst. Þar verður að finna heildartölur fyrir árið 2011 og endurskoðaðar niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung auk bráðabirgðatalna fyrir annan ársfjórðung 2012.
Þjónustuviðskipti við útlönd 2012 | |
1. ársfj. 2012 | |
Verðmæti í milljónum króna | |
Útflutt þjónusta | 64.543,9 |
Samgöngur | 32.232,5 |
Ferðalög | 12.386,1 |
Önnur þjónusta | 19.925,3 |
Innflutt þjónusta | 69.607,8 |
Samgöngur | 22.146,7 |
Ferðalög | 18.723,6 |
Önnur þjónusta | 28.737,5 |
Þjónustujöfnuður | -5.063,8 |
Samgöngur | 10.085,9 |
Ferðalög | -6.337,5 |
Önnur þjónusta | -8.812,2 |
Talnaefni