FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. ÁGÚST 2013


Útflutningur á þjónustu á öðrum ársfjórðungi 2013 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, tæpir 104 milljarðar króna en innflutningur á þjónustu 83,9 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 20 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi en var jákvæður um 6,6 milljarða á sama tíma 2012 á gengi hvors árs.


Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi og afgangur vegna þeirrar þjónustu var 23,7 milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu 9,9 milljörðum. Afgangur á ferðaþjónustu var 6,3 milljarðar.

Þjónustuviðskipti við útlönd 2013      
  Alls  1. ársfj. 2013 2. ársfj. 2013
Verðmæti í milljónum króna      
Útflutt þjónusta 178.338,4 74.367,4 103.971,0
Samgöngur 86.135,0 37.803,8 48.331,2
Ferðalög 50.426,4 17.873,3 32.553,1
Önnur þjónusta 41.777,1 18.690,4 23.086,7
       
Innflutt þjónusta 158.452,9 74.544,9 83.908,0
Samgöngur 47.616,6 22.936,3 24.680,3
Ferðalög 46.327,2 20.096,6 26.230,6
Önnur þjónusta 64.509,1 31.512,0 32.997,2
       
Þjónustujöfnuður 19.885,4 -177,5 20.063,0
Samgöngur 38.518,3 14.867,5 23.650,9
Ferðalög 4.099,2 -2.223,4 6.322,6
Önnur þjónusta -22.732,1 -12.821,6 -9.910,5

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.