FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 01. JÚNÍ 2015

Heildarútflutningur á þjónustu á fyrsta ársfjórðungi 2015 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 101,2 milljarðar króna en innflutningur á þjónustu 81,8 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 19,5 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi en var jákvæður um 15,6 milljarða á sama tíma árið 2014 á gengi hvors árs.

Útflutt samgöngu- og flutningaþjónusta nam 36,1 milljarði og var stærsti liðurinn í útfluttri þjónustu á ársfjórðungnum. Innflutt samgöngu- og flutningaþjónusta nam 13,3 milljörðum. Afgangur nam því 22,8 milljörðum.

Innflutt ferðaþjónusta nam 24,7 milljörðum og var stærsti liðurinn í innfluttri þjónustu á ársfjórðungnum. Útflutt ferðaþjónusta var 31,3 milljarðar og því nam afgangur hennar 6,6 milljörðum. Afgangur á sama ársfjórðungi árið 2014 nam 2,4 milljörðum á gengi hvors árs.

Önnur innflutt viðskiptaþjónusta nam 21,8 milljörðum og útflutningur hennar 8,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi. Líkt og fyrri ár var halli mestur af þessum þjónustulið eða 13,3 milljarðar.
Samhliða þessari útgáfu hefur brúartafla verið uppfærð. Taflan sýnir breytingar á útgefnum tölum á vöru- og þjónustuviðskiptum og tölum um viðskipti eins og þau birtast í greiðslujöfnuði.

Með þessari útgáfu er birt tafla um valda liði vöru og þjónustu 2013-2015.

Þjónustuviðskipti við útlönd 2015  
  1. ársfj. 2015
Verðmæti í milljónum króna  
Útflutt þjónusta 101.223,2
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara 6.278,5
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. 1.498,3
3. Samgöngur og flutningar 36.085,7
4. Ferðalög 31.341,0
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð 341,9
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta 535,0
7. Fjármálaþjónusta 4.449,0
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. 4.380,6
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta 6.556,9
10. Önnur viðskiptaþjónusta 8.558,4
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta 645,8
12. Opinber þjónusta ót.a. 552,1
   
Innflutt þjónusta 81.751,4
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara 0,0
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. 5.064,7
3. Samgöngur og flutningar 13.331,7
4. Ferðalög 24.729,8
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð 264,8
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta 1.552,1
7. Fjármálaþjónusta 3.146,1
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. 3.330,7
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta 6.335,1
10. Önnur viðskiptaþjónusta 21.808,8
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta 1.803,7
12. Opinber þjónusta ót.a. 384,0
   
Þjónustujöfnuður 19.471,8
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara 6.278,5
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. -3.566,3
3. Samgöngur og flutningar 22.754,0
4. Ferðalög 6.611,2
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð 77,1
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta -1.017,1
7. Fjármálaþjónusta 1.302,9
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. 1.049,9
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta 221,8
10. Önnur viðskiptaþjónusta -13.250,4
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta -1.157,9
12. Opinber þjónusta ót.a. 168,2

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.