FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 18. DESEMBER 2023

Verðmæti þjónustuútflutnings í október 2023 er áætlað 82,1 milljarður króna og að það hafi aukist um 18% frá því í október 2022 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 37,1 milljarður í október og að þær hafi aukist um 29% miðað við október 2022. Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 25,1 milljarður króna í október og hafi aukist um 29% miðað við október 2022. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 19,8 milljarðar í október og að það hafi dregist saman um 3% frá því í október árið áður.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í október er áætlað 53,9 milljarðar króna og að það hafi dregist saman um 3% frá því í október 2022 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 18,9 milljarður í október og hafi dregist saman um 5% samanborið við október árið áður. Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið 10,0 milljarðar í október og hafi dregist saman um 8% samanborið við október árið áður. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 24,9 milljarðar í október og að það hafi staðið í stað frá því í október fyrir ári. Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 28,2 milljarða króna í október.

Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá nóvember 2022 til október 2023, hafi verið 923,3 milljarðar króna og að það hafi aukist um 27% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 618,7 milljarðar og hafi aukist um 13% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 71,8 milljarðar króna í október 2023 en vöruinnflutningur 118,4 milljarður. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 46,6 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í október 2023 er því áætlað 153,9 milljarðar króna og hafi aukist um 3% miðað við sama mánuð 2022. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 172,3 milljarður og dróst saman um 6% miðað við sama mánuð 2022. Því er áætlað að vöru- og þjónustujöfnuður hafi verið neikvæður um 18,4 milljarða í október 2023 samanborið við 34,5 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir sama mánuð 2022.

Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.866,6 milljarðar króna á tólf mánaða tímabilinu nóvember 2022 til október 2023 og hafi aukist um 10% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.896,7 milljarðar og aukist um 8% miðað við tólf mánuði þar á undan. Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir umrætt tólf mánaða tímabil hafi verið neikvæður um 3,1 milljarð króna samanborið við 26 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.