Í nóvember 2018 er vöruútflutningur í greiðslujöfnuði1 áætlaður 54,6 milljarðar en vöruinnflutningur í greiðslujöfnuði áætlaður 72,6 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði er því áætlaður neikvæður um 18,0 milljarða. Þjónustujöfnuður í nóvember 2018 er hins vegar áætlaður jákvæður um 10,6 milljarða en útflutt þjónusta er áætluð 49,3 milljarðar á meðan innflutt þjónusta er áætluð 38,7 milljarðar.

Í nóvember 2018 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 103,9 milljarðar en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta er 111,3 milljarðar. Vöru og þjónustujöfnuður er því áætlaður neikvæður um 7,4 milljarða í nóvember 2018.

1Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni