FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 22. MAÍ 2023

Verðmæti þjónustuútflutnings í febrúar 2023 er áætlað 52,4 milljarðar króna og að það hafi aukist um 47% frá því í febrúar 2022 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 23,9 milljarðar í febrúar og að þær hafi aukist um 80% miðað við febrúar 2022. Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 14,2 milljarðar króna í febrúar og hafi aukist um 46% miðað við febrúar 2022. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 14,3 milljarðar í febrúar og að það hafi aukist um 14% frá því í febrúar árið áður.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í febrúar er áætlað 46,4 milljarðar króna og að það hafi aukist um 33% frá því í febrúar 2022 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 15,6 milljarðar í febrúar og hafi aukist um 45% samanborið við febrúar árið áður. Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið 9,2 milljarðar í febrúar og að þau hafi aukist um 35% samanborið við febrúar árið áður. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 21,6 milljarðar í febrúar og aukist um 25% frá því í febrúar fyrir ári. Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 6 milljarða króna í febrúar.

Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá mars 2022 til febrár 2023, hafi verið 771,9 milljarðar króna og hafi aukist um 61% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 576,2 milljarðar og aukist um 46% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 75,2 milljarðar króna í febrúar 2023 en vöruinnflutningur 93,8 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 18,6 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í febrúar 2023 er því áætlað 127,6 milljarðar króna og hafi aukist um 25% miðað við sama mánuð 2022. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 140,2 milljarðar og jókst um 27% miðað við sama mánuð 2022. Því er áætlað að vöru- og þjónustujöfnuður hafi verið neikvæður um 12,6 milljarða í febrúar 2023 samanborið við 8,5 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir sama mánuð 2022.

Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.789,6 milljarðar króna á tólf mánaða tímabilinu mars 2022 til febrúar 2023 og hafi aukist um 39% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.823,9 milljarðar og aukist um 35% miðað við tólf mánuði þar á undan. Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir umrætt tólf mánaða tímabil hafi verið neikvæður um 34,2 milljarða króna samanborið við 60,4 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.