FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. JÚLÍ 2023

Verðmæti þjónustuútflutnings í apríl 2023 er áætlað 61,4 milljarðar króna og að það hafi aukist um 26% frá því í apríl 2022 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 27,4 milljarðar í apríl og að þær hafi aukist um 47% miðað við apríl 2022. Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 17,3 milljarðar króna í apríl og hafi aukist um 26% miðað við apríl 2022. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 16,8 milljarðar í apríl og að það hafi aukist um 12% frá því í apríl árið áður.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í apríl er áætlað 51,3 milljarðar króna og að það hafi aukist um 17% frá því í apríl 2022 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 19,1 milljarður í apríl og hafi aukist um 14% samanborið við apríl árið áður. Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið 9,5 milljarðar í apríl og að þau hafi aukist um 19% samanborið við apríl árið áður. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 22,7 milljarðar í apríl og að það hafi aukist um 17% frá því í apríl fyrir ári. Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 10,2 milljarða króna í apríl.

Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá maí 2022 til apríl 2023, hafi verið 798 milljarðar króna og að það hafi aukist um 53% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 590,5 milljarðar og aukist um 36% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 69,4 milljarðar króna í apríl 2023 en vöruinnflutningur 85,1 milljarður. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 15,7 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í apríl 2023 er því áætlað 130,8 milljarðar króna og hafi aukist um 6% miðað við sama mánuð 2022. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 136,3 milljarðar og jókst um 6% miðað við sama mánuð 2022. Því er áætlað að vöru- og þjónustujöfnuður hafi verið neikvæður um 5,5 milljarða í apríl 2023 samanborið við 6,3 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir sama mánuð 2022. Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.811,9 milljarðar króna á tólf mánaða tímabilinu maí 2022 til apríl 2023 og hafi aukist um 33% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.849,6 milljarðar og aukist um 30% miðað við tólf mánuði þar á undan. Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir umrætt tólf mánaða tímabil hafi verið neikvæður um 37,7 milljarða króna samanborið við 58,7 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.