FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. JÚLÍ 2022

Verðmæti þjónustuútflutnings í apríl 2022 er áætlað 47,5 milljarðar króna og að það hafi aukist um 44% frá því í apríl 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 18,9 milljarðar í apríl og að þær hafi aukist verulega samanborið við sama tíma árið 2021.

Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 13,7 milljarðar króna í apríl og að þær hafi aukist um 84% miðað við apríl 2021. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 14,9 milljarðar í apríl og að það hafi dregist saman um 33% frá því í apríl árið áður.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í apríl er áætlað 45,4 milljarður króna og að það hafi aukist um 94% frá því í apríl 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 17 milljarðar í apríl og hafi aukist verulega samanborið við apríl árið áður.

Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið 8,2 milljarðar í apríl og hafi aukist um 60% miðað við apríl 2021. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 20,2 milljarðar í apríl og hafi aukist um 39% frá því í apríl fyrir ári. Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 2,1 milljarð króna í apríl.

Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá maí 2021 til apríl 2022, hafi verið 536,7 milljarðar króna og hafi aukist um 58% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 446,5 milljarðar og hafi aukist um 54% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 73,9 milljarðar króna í apríl 2022 en vöruinnflutningur 85,3 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 11,4 milljarða króna.

Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í apríl 2022 er því áætlað 121,4 milljarðar króna og að það hafi aukist um 27% miðað við sama mánuð 2021. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 130,6 milljarðar og jókst um 43% miðað við sama mánuð 2021.

Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.391,3 milljarðar króna á síðustu tólf mánuðum og hafi aukist um 39% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.466,3 milljarðar og hafi aukist um 41% miðað við tólf mánuði þar á undan.

Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir síðustu tólf mánuði hafi verið neikvæður um 75 milljarða króna samanborið við 35,3 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustuviðskipti
Vöruviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.