FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 18. NÓVEMBER 2022

Verðmæti þjónustuútflutnings í ágúst 2022 er áætlað 93 milljarðar króna og að það hafi aukist um 63% frá því í ágúst 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 50,3 milljarðar í ágúst og að þær hafi aukist um 57% samanborið við sama tíma árið 2021. Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 28,7 milljarðar króna í ágúst og að þær hafi rétt rúmlega tvöfaldast miðað við ágúst 2021. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 14 milljarðar í ágúst og að það hafi aukist um 21% frá því í ágúst árið áður.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í ágúst er áætlað 49,7 milljarðar króna og að það hafi aukist um 49% frá því í ágúst 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 19 milljarðar í ágúst og að þau hafi aukist um 80% samanborið við ágúst árið áður. Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið tíu milljarður í ágúst og hafi aukist um 57% miðað við ágúst 2021. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 20,7 milljarðar í ágúst og hafi aukist um 25% frá því í ágúst fyrir ári. Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 43,3 milljarða króna í ágúst.

Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá september 2021 til ágúst 2022, hafi verið 683,6 milljarðar króna og hafi aukist um 68% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 528,6 milljarðar og hafi aukist um 67% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 94,5 milljarðar króna í ágúst 2022 en vöruinnflutningur 105,1 milljarður. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 10,5 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í ágúst 2022 er því áætlað 187,5 milljarðar króna og að það hafi aukist um 65% miðað við sama mánuð 2021. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 154,8 milljarðar og jókst um 34% miðað við sama mánuð 2021. Því er áætlað að vöru- og þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 32,7 milljarða í ágúst 2022 samanborið við 1,2 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir sama mánuð 2021.

Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.631,1 milljarður króna á tólf mánaða tímabilinu september 2021 til ágúst 2022 og hafi aukist um 45% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.632 milljarðar og hafi aukist um 41% miðað við tólf mánuði þar á undan. Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir þetta tólf mánaða tímabil hafi verið neikvæður um 0,9 milljarða króna samanborið við 37,1 milljarðs neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.