FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 22. MAÍ 2015

Á árinu 2014 voru fluttar út vörur fyrir 590,5 milljarða króna fob en inn fyrir 586,3 milljarða króna fob, 626,9 milljarða króna cif. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti út- og innflutnings, sem nam 4,2 milljörðum króna en 40,2 milljarða króna afgangur var árið 2013 á gengi hvors árs¹. Vöruútflutningur dróst saman um 3,3% frá fyrra ári, á gengi hvors árs, en vöruinnflutningur jókst um 2,8%. Hlutur iðnaðarvöru var 52,5% alls vöruútflutnings og hlutur sjávarafurða var 41,3% en í vöruinnflutningi voru stærstu vöruflokkarnir hrá- og rekstrarvörur með 27,3% hlutdeild og fjárfestingarvörur með 21,2% hlutdeild. Stærstu viðskiptalönd voru Holland (Niðurland) í vöruútflutningi og Noregur í vöruinnflutningi og var EES þýðingarmesta markaðssvæðið, jafnt í vöruútflutningi sem vöruinnflutningi.


¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.


 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.