Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 51,9 milljarða króna og inn fyrir 54,5 milljarða króna fob (58,3 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 2,6 milljarða króna. Í júlí 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 2,2 milljarða króna á gengi hvors árs¹.
Fyrstu sjö mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 385,2 milljarða króna en inn fyrir rúma 391,5 milljarða króna fob (417,7 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 6,4 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 7,6 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 1,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 58,7 milljörðum eða 18,0% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 54,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 24,8% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 41,6% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 19,3% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.
Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 57,4 milljörðum eða 17,2% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júlí 2014 og 2015 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % jan.-júlí | ||||
Júlí | Jan.-júlí | ||||
2014 | 2015 | 2014 | 2015 | ||
Útflutningur alls fob | 55.386,5 | 51.907,0 | 326.482,0 | 385.176,2 | 18,0 |
Sjávarafurðir | 20.860,1 | 20.494,3 | 134.443,0 | 160.369,5 | 19,3 |
Landbúnaðarvörur | 636,6 | 842,5 | 5.772,5 | 7.678,3 | 33,0 |
Iðnaðarvörur | 29.142,3 | 29.257,8 | 167.188,2 | 208.635,1 | 24,8 |
Aðrar vörur | 4.747,6 | 1.312,5 | 19.078,3 | 8.493,3 | -55,5 |
Innflutningur alls fob | 53.228,4 | 54.465,7 | 334.123,9 | 391.536,0 | 17,2 |
Matvörur og drykkjarvörur | 5.335,1 | 6.910,8 | 31.424,8 | 39.354,4 | 25,2 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 15.615,2 | 13.618,2 | 94.636,2 | 115.187,4 | 21,7 |
Eldsneyti og smurolíur | 10.603,9 | 9.292,5 | 58.218,1 | 50.258,1 | -13,7 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 10.105,5 | 12.000,5 | 72.619,9 | 76.894,0 | 5,9 |
Flutningatæki | 5.118,7 | 6.000,1 | 36.460,4 | 64.109,3 | 75,8 |
Neysluvörur ót.a. | 6.400,4 | 6.476,7 | 40.261,0 | 44.879,9 | 11,5 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 49,6 | 167,0 | 503,5 | 852,8 | 69,4 |
Vöruskiptajöfnuður | 2.158,2 | -2.558,7 | -7.641,9 | -6.359,8 | . |
¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.