FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. JÚLÍ 2015

Vöruskiptajöfnuður
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 56,2 milljarða króna og inn fyrir 66,4 milljarða króna fob (70,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 10,2 milljarða króna. Í júní 2014 voru vöruskiptin óhagstæð um 12,0 milljarða króna á gengi hvors árs¹.

Fyrstu sex mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir rúma 332,4 milljarða króna en inn fyrir tæpa 338,4 milljarða króna fob (360,7 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 5,9 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 9,8 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 3,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 61,3 milljörðum eða 22,6% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 54,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 29,9% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 42,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 23,2% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.

Innflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 57,5 milljörðum eða 20,5% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júní 2014 og 2015
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % jan.-júní
  Júní Jan.-júní
  2014 2015 2014 2015
           
Útflutningur alls fob 43.554,5 56.201,4 271.095,5 332.444,6 22,6
Sjávarafurðir 17.773,5 27.447,0 113.582,9 139.888,4 23,2
Landbúnaðarvörur 497,4 771,6 5.135,9 6.835,9 33,1
Iðnaðarvörur 21.567,5 26.827,3 138.045,9 179.382,2 29,9
Aðrar vörur 3.716,1 1.155,5 14.330,7 6.338,2 -55,8
           
Innflutningur alls fob 55.590,6 66.382,0 280.895,6 338.357,4 20,5
Matvörur og drykkjarvörur 4.931,2 6.409,9 26.089,7 32.737,2 25,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.519,5 21.838,8 79.021,0 101.292,0 28,2
Eldsneyti og smurolíur 14.134,7 9.442,0 47.614,2 40.965,7 -14,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.937,9 13.328,7 62.514,4 64.926,7 3,9
Flutningatæki 6.468,1 8.875,5 31.341,7 59.348,1 89,4
Neysluvörur ót.a. 5.583,7 6.401,1 33.860,6 38.402,1 13,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 15,4 86,0 453,9 685,8 51,1
           
Vöruskiptajöfnuður -12.036,1 -10.180,6 -9.800,1 -5.912,8 .


¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.