Losun gróðurhúsalofts frá hagkerfi Íslands árið 2025 var 6.403 kílótonn CO2 ígilda samkvæmt bráðabirgðareikningum Hagstofunnar. Þetta gildi er 5,4% lægra en niðurstaða ársins 2024, eða um 363 kílótonn.
Mestur samdráttur í losun milli 2024 og 2025 var í atvinnugreininni C20 - Framleiðsla efna og efnavöru, þar sem losun reiknast um 60 kílótonnum minni á milli ára. Kísilframleiðsla á Bakka heyrir undir þessa atvinnugrein en verksmiðjan lokaði um mitt ár 2025. Losun frá atvinnugreininni A03 - Fiskveiðar og fiskeldi reiknast einnig um 60 kílótonnum minni á milli ára.
Losun gróðurhúsalofts vegna heimila var hins vegar nánast óbreytt frá árinu áður en árið 2024 var losun 1,7% minni en árið 2023.